Fréttasafn

|

01.09.2020

Fækkum bílslysum

Ökuvísir er bylt­ing­ar­kennd nýjung hér á landi, en slík tækni er vel þekkt erlendis. Ökuvísir er ný leið í trygg­ingum þar sem verð­launað er fyrir öruggan akstur og minnka þar með líkur á slysum. Ökuvísir veitir þér endur­gjöf á akst­urinn í gegnum app. Með öruggum akstri geta viðskipta­vinir okkar borgað lægra verð.

Við ætlum að verð­launa góðan akstur. Reynslan erlendis sýnir að bílslysum fækkar allt að að 20% hjá þeim sem nota slíka tækni. Við ætlum nefni­lega að breyta því hvernig trygg­ingar virka. Við ætlum ekki að bíða eftir því að slysin gerist heldur ætlum við ─ í samvinnu við viðskipta­vini okkar ─ að koma í veg fyrir þau.

Stefnt er að því að Ökuvísir verði klár fyrir lok árs, en nú stendur yfir spenn­andi vöru­þróun. Við óskum eftir þátt­töku frá viðskipta­vinum okkar. Við viljum hanna og þróa vöru sem hentar þeim.

Hjálpaðu okkur að þróa Ökuvísi og segðu okkur hvað þér finnst. Í alvöru.

Því saman getum við nefni­lega lyft grett­i­staki. Í samvinnu við viðskipta­vini okkar ætlum við að breyta umferð­ar­menn­ing­unni á Íslandi ─ og fækka slysum.

Fréttasafn
Deila frétt