Fréttasafn

|

03.12.2020

Eru eldvarn­irnar í lagi hjá þér?

Á aðvent­unni eru eldvarnir heim­il­isins aldrei eins mikil­vægar þar sem flestir brunar á heim­ilum landsins verða í desem­ber.

Við hvetjum alla til að fara yfir stöðuna á sínu heimili til að vera viss um að eldvarn­irnar séu í lagi. Það er ekki óskastaða neins að eldur kvikni á heim­il­inu.

Reyk­skynj­arar
  • Eru virkir reyk­skynj­arar í öllum rýmum heim­il­is­ins?

  • Eru reyk­skynj­ar­arnir meira en 10 ára gamlir? Ef svo er, þarf að skipta þeim út.

  • Eru 9 volta rafhlöður í reyk­skynj­urum? Ef svo er, þá þarf að skipta um rafhlöðuna árlega. 

Slökkvi­tæki
  • Er slökkvi­tæki á sýni­legum stað nærri flótta­leið?

  • Eru meira en þrjú ár síðan tækið var yfir­farið? Ef svo er, ekki draga að láta yfir­fara það. Þú vilt að það virki, ef fjöl­skyld­an þarf að nota það.

Eldvarna­teppi
  • Er eldvarna­teppi á sýni­legum stað í eldhús­inu?

  • Er eldvarna­teppið í hæfi­legri fjar­lægð frá elda­vél­inni?

Helstu orsakir bruna

Algeng­ustu orsakir bruna í desember eru kerti og elda­mennska. Við fögnum komu LED kerta og LED sería þar sem lítil bruna­hætta er af þeim.

Verum örugg yfir jólin, njótum aðvent­unnar og jóla­há­tíð­ar­innar. Ef einhvern vantar góða hugmynd að jóla­gjöf þá eru örygg­is­vörur góð gjöf, þær sýna ást og umhyggju. Á fríð­inda­síðu okkar finna viðskipta­vinir okkar fyrir­tæki sem bjóða þeim afslátt af eldvarn­ar­búnaði fyrir heim­ilið ásamt upplýs­ingum um hvernig virkja á afslátt­inn. 

Fréttasafn
Deila frétt