Fréttasafn

|

27.08.2020

Er skólataskan of þung?

Nú eru skólar landsins að fyllast af spenntum skóla­börnum sem hlakka til að takast á við verk­efni vetr­ar­ins. Mikil­vægt er að velja skóla­töskuna vel því börnin eru með hana á bakinu um 180 daga á ári, í að minnsta kosti 10 ár.

Gæði tösk­unnar og þyngd hennar getur haft mikið að segja um vellíðan barn­anna þar sem of þung taska getur ýtt undir stoð­kerf­is­vandamál og verki. Gott er að miða við að taskan sé ekki þyngri en 10-15% af líkams­þyngd barns­ins.

Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.

  • Velja bakpoka frekar en hliðar- eða hand­tösku.

  • Tryggja að taskan sé af réttri stærð.

  • Hafa bak og bönd vel fóðruð.

  • Axlar­bönd séu breið og still­an­leg.

  • Mittis- og bringuól til staðar og still­an­leg.

  • Bakpokinn sitji á mjöðmum en ekki allur á öxlum.

  • Taka til í töskuna fyrir hvern dag.

  • Raða þyngstu hlut­unum við bak tösk­unnar.

  • Merkja tösk­una, skóla­dótið og fatn­að­inn.

  • Setja endur­skin á tösk­una.

Fréttasafn
Deila frétt