Fréttasafn

|

04.03.2020

Er hægt að búa sig undir jarð­skjálfta?

Á korti Veður­stof­unnar má sjá að flestir jarð­skjálftar verða á Reykja­nesi og þá í kringum Grinda­vík. Umrót er og hefur verið á þessu svæði. Þess vegna eru forvarnir á heim­ilum og vinnu­stöðum mikil­vægar.

Flestir jarð­skjálftar hérlendis eru það litlir að enginn verður var við þá nema skjálfta­mælar. Það er því áhuga­vert að sjá tíðni þeirra á korti Veður­stof­unnar sem uppfært er á fimm mínútna fresti. Þar má sjá að lang flestir skjálft­arnir verða á Reykja­nesi, þ.e. í kringum Grinda­vík. Umrót er og hefur verið á þessu svæði. Þess vegna eru forvarnir á heim­ilum og vinnu­stöðum mikil­vægar. Forvarnir þar sem mark­miðið er að minnka líkur á slysum og tjóni.

Hafðu þetta í huga:
  • Að festa skápa og hillur við vegg.

  • Hafðu ekki þunga hluti ofar­lega í hillu.

  • Festu sjón­vörp við borð eða veggi.

  • Hafðu rúm ekki undir gluggum nema örygg­is­filma sé á rúðu.

  • Festu myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur.

  • Settu örygg­is­læs­ingar á skápa til að varna því að brot­hættir hlutir detti út úr þeim.

  • Farðu vel yfir með fjöl­skyld­unni hvar vatns­inntak hússins er og hvernig á að skrúfa fyrir.

  • Hafðu viðlaga­búnað eins og sjúkra­gögn, lang­bylgju útvarp með rafhlöðum, vasa­ljós, teppi, vasa­hníf, merki 112 síma­núm­ersins og auka­lykla að bíl, sumar­bú­stað eða öðrum stað sem fjöl­skyldan hefur aðgang að.

  • Kannaðu hvar næsta fjölda­hjálp­ar­stöð er.

Farðu vel yfir rétt viðbrögð ef jarð­skjálfti verður
  • Gott er að verja sig fyrir slysum með því að krjúpa, skýla og halda í. Gott getur verið að fara í horn á herbergi eða undir borð eða annað sem veitir skjól.

  • Ekki er mælt með því að hlaupa út, sérstak­lega ef um einhverja vega­lengd þarf að fara, þar sem erfitt er að fóta sig þegar allt er á hreyf­ingu.

  • Farðu í skó til af verja fætur ef gler­brot eða annað er á gólfum.

  • Skrúfaðu fyrir vatns­inntak ef farið er að leka.

  • Skrúfaðu fyrir gaskútinn ef þú ert með gaselda­vél.

  • Kveiktu á útvarpi til að hlusta eftir upplýs­ingar og tilkynn­ingum.

  • Ef íbúar meta hús óíbúð­ar­hæft skaltu fara út í róleg­heitum, taktu með þér það nauð­syn­leg­asta og farðu í næstu fjölda­hjálp­ar­stöð.

  • Mögu­leiki er á að símkerfi laskast og álag sé mikið. Því er gott að nota síma eingöngu í neyð.

  • Ef slys er á fólki skaltu hringja í 112.

Hvaða trygg­ingar taka á jarð­skjálftum?
  • Bruna­trygging húseigna er skyldu­trygg­ing. Allt sem er bruna­tryggt er sjálf­krafa viðlaga­tryggt hjá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands sem þýðir að það er tryggt fyrir tjóni af völdum eldgosa, jarð­skjálfta, skriðu­falla, snjóflóða og vatns­flóða.

  • Ekki er skylt samkvæmt lögum að tryggja innbú eða annað lausafé. Mikil­vægt er að hver og einn meti sitt innbú og lausa­muni og tryggi í samræmi við andvirði þess. Mjög algengt er að andvirði innbús sé vanmetið þegar trygg­ingar eru tekn­ar. Ef innbú eða lausafé er tryggt hjá trygg­inga­fé­lagi gildir jafn­framt trygging hjá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands, meðal annars gegn tjónum vegna jarð­skjálfta. Vátrygg­inga­fjár­hæðir eru þær sömu og hjá trygg­inga­fé­lagi þínu en sér reglur gilda um eigin áhættu hjá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands.

Fréttasafn
Deila frétt