Fréttasafn

|

01.01.2020

Breyt­ingar á lögum um ökutækja­trygg­ingar hafa áhrif á trygg­ingar tengi­vagna

Með nýjum lögum um ökutækja­trygg­ingar, sem tóku gildi 1. janúar 2020, telst tengi­vagn* eða annað tæki sem fest er við ökutæki sem ein heild. Það þýðir að á­byrgð­ar­trygging ökutækis nær ekki yfir tjón sem verður á tengi­vagni óháð eign­ar­haldi. Áður tók ábyrgð­ar­trygg­ingin á slíku tjóni ef eigandi eftir­vagns var ekki ökumaður eða eigandi ökutæk­is­ins. 

Dæmi: A fær kerru lánaða hjá B og lendir í ökutækja­tjóni sem hann er valdur af.

  • Tjón á kerru greiðist úr ábyrgð­ar­trygg­ingu ökutækis A.

  • Tjón á kerru greiðist ekki úr ábyrgð­ar­trygg­ingu ökutækis A.

Ábyrgð­ar­trygging ökutækis tekur áfram á tjónum sem verða vegna ökutækis sem dregur tengi­vagn, að vagni frátöldum.

Til að tryggja tengi­vagninn sjálfan þarf að kaskó­tryggja hann. Þess ber að geta að kaskó­trygging ökutækis nær aldrei yfir tengi­vagn­inn.

Ef þú átt tengi­vagn, hvetjum við þig til að fara vel yfir trygg­ingar þínar. 

Þú getur óskað eftir trygg­ingu fyrir tengi­vagninn á með því að senda okkur póst á vis@vis.is.

*allir tengi­vagnar t.d. kerrur, hesta­kerrur, tjald­vagnar og felli­hýsi.

Fréttasafn
Deila frétt