Fréttasafn

|

19.11.2020

Borg­ar­búar, unga fólkið og leigj­endur með miklu lakari eldvarnir

Könnun Eldvarna­banda­lagsins sýnir að alls ekki öll heimili fá ekki fullt hús stiga í eldvörnum og nauð­syn­legt að þau geri brag­arbót á því.

Reykskynjari og reykur í kring

Eldvarnir á heim­ilum í Reykjavík eru mun lakari en á heim­ilum í nágranna­sveit­ar­fé­lögum og þó sérstak­lega miðað við heimili utan höfuð­borg­ar­svæð­is­ins, samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Eldvarna­banda­lagið. Fjöldi reyk­skynjara er að meðal­tali 2,8 á heim­ilum í höfuð­borg­inni en 3,7 á heim­ilum utan höfuð­borg­ar­svæð­is­ins. Þá er mun algengara að enginn eða aðeins einn reyk­skynjari sé á heim­ilum í Reykjavík en utan höfuð­borg­ar­svæð­is­ins.

Könn­unin leiðir einnig í ljós að eldvörnum er víða ábóta­vant hjá fólki á aldr­inum 25-34 ára, leigj­endum og þeim sem búa í stærri fjöl­býl­is­húsum. Í 45 prósent íbúða í leigu­hús­næði er enginn eða aðeins einn reyk­skynjari og hlut­fallið er svipað í fjöl­býl­is­húsum með sex íbúðum eða fleiri. Að meðal­tali er þetta hlut­fall 28 prósent og allt niður í 20 prósent á heim­ilum utan höfuð­borg­ar­svæð­is­ins.

Gallup gerði könn­unina 30. sept­ember til 7. október síðast­lið­inn. Þátt­töku­hlut­fall var 58,2 prósent. Gallup hefur gert sambæri­legar kann­anir fyrir Eldvarna­banda­lagið og Lands­sam­band slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna (LSS) á tveggja ára fresti síðan 2006. Kann­anir Gallup sýna að heim­ilin auka eldvarnir jafnt og þétt. Aldrei hafa jafn fáir sagst ekki vera með reyk­skynjara eða um þrjú prósent. Þeim fjölgar jafnt og þétt sem eru með fjóra reyk­skynjara eða fleiri. Æ fleiri segjast vera með allt í senn reyk­skynj­ara, slökkvi­tæki og eldvarna­teppi.

Eldvarna­banda­lagið mælir með því að hafa reyk­skynjara í öllum rýmum, slökkvi­tæki við helstu flótta­leið og eldvarna­teppi á sýni­legum stað í eldhúsi. Þá er brýnt að allir hafi að minnsta kosti tvær flótta­leiðir úr íbúð­inni.

Frávik frá þessu eru sem fyrr segir mjög mikil. Þannig segja aðeins 57 prósent svar­enda á aldr­inum 25-34 ára að slökkvi­tæki sé á heim­ilinu en að meðal­tali er slökkvi­tæki á 75 prósent heim­ila. Svipaða sögu er að segja af eldvarna­teppum. Þau er að finna á aðeins 48 prósent heimila fólks á aldr­inum 25-34 ára en 64 prósent að meðal­tali. Þá eru slökkvi­tæki á 66 prósent heimila í Reykjavík en 81 prósent heimila utan höfuð­borg­ar­svæð­is­ins.

Helstu niður­stöður könn­unar Gallup eru þessar:

  • Á ríflega helm­ingi heimila eru allt í senn reyk­skynj­arar, slökkvi­tæki og eldvarna­teppi.

  • Á 28 prósent heimila er enginn eða aðeins einn reyk­skynjari (38,4 prósent 2006).

  • Heim­ilum með fjóra reyk­skynjara eða fleiri hefur á sama tíma fjölgað úr 21,5 prósent árið 2006 í 37,5 prósent nú.

  • Slökkvi­tæki eru á 75 prósent heimila og hefur þetta hlut­fall aldrei mælst hærra.

  • Eldvarnir eru að jafnaði öflug­astar hjá þeim sem búa í einbýli en lakastar hjá þeim sem búa í stærri fjöl­býl­is­húsum.

VÍS hefur verið aðili að Eldvarna­banda­laginu frá stofnun þess. Undan­farna mánuði hafa verið margar fréttir í fjöl­miðlum af brunum á heim­ilum og núna nálgast sá mánuður þar sem brunar á heim­ilum eru flestir. Ekki bíða með það til morguns að tryggja að eldvarnir á þínu heimili séu í lagi. Virkur reyk­skynjari í hverju rými, virkt slökkvi­tæki við flótta­leið og eldvarna­teppi á sýni­legum stað í eldhús­inu. Þessi búnaður ásamt öruggri umgengni við rafmagns­tæki, sérstak­lega eldavél og kerti geta skipt öllu. Nánari upplýs­ingar um eldvarnir heim­il­isins má sjá hér.

Fréttasafn
Deila frétt