Fréttasafn

|

20.05.2020

Aldrei fleiri með hjálm

Hlut­fall þeirra sem nota hjálm hefur aldrei verið hærra en nú, eða 94%, samkvæmt nýlegri könnun sem VÍS fram­kvæmdi á hjálm­a­notkun reið­hjóla­fólks. Könnun var fram­kvæmd í níunda skipti samhliða Hjólað í vinn­una. Að einungis 6% þeirra 1.043 sem fóru hjólandi fram hjá teljurum VÍS hafi verið án hjálms verður að teljast frábær niður­staða. Árið 2012, var hlut­fallið 74% og 2013 var hlut­fallið orðið 84%. Hlut­fallið hefur svo haldið áfram að hækka með hverju árinu og er nú 94%

Höfuð­högg eru ekki algeng­ustu áverkar hjól­reiða­fólks en aftur á móti þeir alvar­leg­ustu. Til þess að hjálmur veiti þá vernd sem honum er ætlað, þarf hann að vera í lagi og ekki of gamall. Einnig er mikil­vægt að hann passi og sé rétt stilltur. Hann á að vera beint ofan á höfð­inu, eyrun eiga að vera í miðju V-formi band­anna ─ og einungis einn til tveir fingur eiga að komast undir höku­bandið.

Samkvæmt könn­unni, er um þriðj­ungur hjól­reiða­fólks í sýni­leikafatnaði og hefur hlut­fallið haldist stöðugt þau ár sem það hefur verið kannað. Góður sýni­leiki er mikil­vægur öllum vegfar­endum, jafnt bílstjórum, hjól­reiða­fólki sem og gang­andi ─ en umferð þessara hópa skarast mikið.

Fréttasafn
Deila frétt