Fréttasafn

|

14.04.2020

Á góðum dekkjum allt árið

Slitin og léleg dekk lengja líka heml­un­ar­vega­lengd, auka líkur á að bíll fljóti upp í bleytu og renni til í beygjum. Við hvetjum alla til að keyra inn í sumarið á góðum dekkjum og minnum á frábæra afslætti, allt að 30 %, sem fyrir­tæki bjóða viðskipta­vinum okkar.

Nú þegar vetur konungur er loksins að láta undan og hillir í sumar­daginn fyrsta er ekki úr vegi að huga að ástandi dekkj­anna sem aka á um í sumar. Samkvæmt könnun sem VÍS gerði á dekkja­búnaði tjóna­bíla að vetri til, voru rúmlega þriðj­ungur þeirra á heils­árs­dekkjum. Því má búast við að margir aki inn í sumarið á þeim dekkjum sem þeir voru á í vetur. Þeir ættu samt sem áður að skoða ástandið á dekkj­unum þ.e. slit og mynst­urs­dýpt, hreinsa þau og mæla loft­þrýst­ing­inn.

Slitin og léleg dekk auka slysa­hættu. Þau minnka viðnám bílsins við veginn og því eru meiri líkur á að missa stjórnina á honum. Slitin og léleg dekk lengja líka heml­un­ar­vega­lengd, auka líkur á að bíll fljóti upp í bleytu og renni til í beygjum. Við hvetjum alla til að keyra inn í sumarið á góðum dekkjum.

Fréttasafn
Deila frétt