Fréttasafn
|15.05.2020
Á ferðalagi um landið okkar
Ljóst er að margir Íslendingar verða á faraldsfæti um landið í sumar. Landinn er hvattur til að skoða þá fjölmörgu fallegu staði sem landið hefur uppá að bjóða og styðja við íslenska ferðaþjónustu.

Samkvæmt nýlegri könnun EMC rannsókna þá ætla 59% Íslendinga að gista í húsbíl eða nota eftirvagn á ferðalögum sínum í sumar. Sama hver ferðamátinn er, þá verður alltaf að að passa uppá öryggið. Sérstaklega er mikilvægt að gera það áður en lagt er af stað í fyrstu ferð sumarsins.
Við hvetjum þig til að renna yfir þessi atriði og vera viss um að þau séu í lagi.
Lögbundin skoðun.
Virkur gasskynjari.
Virkur reykskynjari.
Yfirfarið slökkvitæki.
Eldvarnateppi.
Gaskútur og tengingar.
Þjófavörn á dráttarbeisli.
Ljós.
Legur.
Dekk.
Loftþrýstingur.
Akstur
Hliðarspeglar.
Öryggisvír dráttarbeislis
Rúðuvökvi.
Skoða vindafar.
Bílbelti.
Hnakkastuðningur.
Umferðarhraði.
Athygli ökumanns.