Fréttasafn

|

05.02.2019

VÍS leggst á árarnar með Krabba­meins­fé­laginu

Einn af hverjum þremur Íslend­ingur fær krabba­mein einhvern tíma á ævinni. Árið 2018 létust tæplega 700 manns vegna krabba­meina á Íslandi en krabba­mein er önnur algeng­asta dánar­or­sökin hérlendis.

Krabba­meins­fé­lagið hefur líkt og mörg önnur krabba­meins­félög víða um heim leitað til fyrir­tækja, stofn­ana, samtaka og fleiri um að til að taka höndum saman og vinna með þeim að baráttu gegn krabba­meinum.

Einn af hverjum þremur Íslend­ingur fær krabba­mein einhvern tíma á ævinni. Árið 2018 létust tæplega 700 manns vegna krabba­meina á Íslandi en krabba­mein er önnur algeng­asta dánar­or­sökin hérlendis. Hægt væri að koma í veg fyrir að minnsta kosti þriðjung þessara dauðs­falla með auknum forvörnum, þekk­ingu á einkennum, snemm­grein­ingu og meðferð.

VÍS ætlar að leggja sitt af mörk­unum í þeirri vinnu með því að vinna áfram að heil­brigðu vinnu­um­hverfi starfs­fólks, hvetja starfs­menn til hreyf­ingar og heilsu­sam­legs lífernis og miðla þekk­ingu frá Krabba­meins­fé­lag­inu.

Fréttasafn
Deila frétt