Fréttasafn

|

24.10.2019

VÍS í farar­broddi í stytt­ingu vinnu­vik­unnar

VÍS hefur ákveðið að ríða á vaðið og stytta vinnu­vikuna frá og með 1. nóvember næst­kom­andi.

Samið var í síðustu kjara­samn­ingnum VR um stytt­ingu vinnu­tíma frá 1. janúar 2020 um 9 mínútur á dag án skerð­ingar launa. Í samráði við starfs­menn var ákveðið að stytta vinnu­tímann á föstu­dögum um 45 mínútur. Samhliða verður gerð breyting á þjón­ustu­tíma VÍS á föstu­dögum sem verður fram­vegis til kl. 15.30 en stærsta þjón­ustu­skrif­stofan, Mitt VÍS, er sem fyrr opin allan sólar­hringinn á netinu. Þar er hægt að tilkynna öll tjón, fá tilboð í trygg­ingar og nálgast öll helstu yfir­lit.

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS

„VÍS er eftir­sókn­ar­verður vinnu­staður þar sem starfs­fólk hefur tæki­færi til að vaxa og þróast í starfi. Mikil­vægur þáttur í  góðu vinnu­um­hverfi er að skapa jafn­vægi milli vinnu og einka­lífs. Við höfum nú tekið mikil­vægt skref í þá átt með því að stytta vinnu­vikuna strax um næstu mánað­ar­mót. Við erum sann­færð um að þetta góða framtak aðila á vinnu­markaði geri vinnu­staðinn okkar enn fjöl­skyldu­vænni. Við erum stolt af því stíga skrefið núna enda ekki eftir neinu að bíða.“

Fréttasafn
Deila frétt