Fréttasafn

|

07.11.2019

VÍS hlýtur viður­kenn­ingar fyrir jafn­rétti

Félag kvenna í atvinnu­lífinu veitti VÍS viður­kenn­ingu Jafn­væg­is­vog­ar­innar 2019. Jafn­væg­is­vogin er hreyfiafls­verk­efni með það að mark­miði að árið 2027 verði hlut­fallið á milli kynja 40/60 í fram­kvæmda­stjórnum fyrir­tækja á Íslandi.

Hlut­fallið milli kynja í fram­kvæmda­stjórn VÍS í dag er 40/60 konum í vil en við höfum náð að vera með minnsta kosti 40% kvenna í fram­kvæmda­stjórn undan­farin ár.

GEMMAQ kynja­kvarði

Á Keld­an.is, frétta­veita íslenska fjár­mála­mark­að­ar­ins, birtist jafn­réttis­ein­kunn allra fyrir­tækja í Kaup­höll­inni í fyrsta sinn í októ­ber.

Þar er horft til stjórnar og æðstu stjórn­enda fyrir­tækja með kynjagler­augum. Litið er til þess hvort forstjóri og stjórn­ar­formaður séu karlar eða konur og hlut­fall kynj­anna í stjórn og fram­kvæmda­stjórn. VÍS fær einkunnina 9 af 10 á þessum kvarða og einungis eitt annað fyrir­tæki er með jafn­háan stuðul. Meðaltal fyrir­tækj­anna í Kaup­höll­inni í október var 6,5.

Jafn­rétti er ákvörðun

„Við höfum allt frá árinu 2001, þegar við gáfum út fyrstu jafn­rétt­is­stefnu VÍS, unnið með mark­vissum hætti að jafn­rétt­is­málum. Við vitum að hlut­irnir gerast ekki að sjálfu sér. Það þarf að taka ákvörðun um að breyta og ganga í málin og það höfum við gert. Það er sérstak­lega ánægju­legt að uppskera árangur þeirrar vinnu með viður­kenn­ingum sem þessum. Við erum gríð­ar­lega stolt af þessum viður­kenn­ing­um.“ – Anna Rós Ívars­dóttir, mannauðs­stjóri.

Fréttasafn
Deila frétt