Fréttasafn

|

28.11.2019

VÍS afhenti Slysa­varna­skóla sjómanna hundrað­asta flot­gallann

Í dag tóku full­trúar Slysa­varna­skóla sjómanna á móti tíu nýjum flot­göllum frá VÍS og er þetta jafn­framt í tíunda sinn sem trygg­inga­fé­lagið gefur skól­anum slíka galla. Allir flot­gallar sem nemendur og kenn­arar skólans nota til að æfa björgun og meðferð björg­un­ar­bún­aðar eru frá VÍS.

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS, fagnaði áfang­anum í dag og lagði áherslu á þátt Slysa­varna­skóla sjómanna í að stór­fækka slysum á sjómönnum. „Hér er unnið frábært starf og það er okkur sérstök ánægja að halda upp á 10 ára farsælt samstarf sem hefur aukið öryggi sjómanna og fækkað slysum um borð hjá viðskipta­vinum okkar í sjáv­ar­út­vegi. Við hlökkum til að vinna með skól­anum áfram og halda nemendum og kenn­urum á floti í nýjum og góðum göll­um!“

Samstarfið við Slysa­varna­skólann er liður í stór­auk­inni áherslu VÍS á öryggi sjómanna og forvarnir í sjáv­ar­út­vegi. Flestir nemendur Slysa­varna­skóla sjómanna eru starf­andi á fiski­skipum en samkvæmt lögum þurfa sjómenn bæði grunn­menntun og reglu­lega endur­menntun í örygg­is­málum og fer bókleg og verkleg kennsla, til dæmis í meðferð björg­un­ar­bún­aðar, fram um borð í skóla­skipinu Sæbjörgu.

Fréttasafn
Deila frétt