Fréttasafn

|

16.05.2019

Vespur og trygg­ingar

Notkun á vespum hefur færst í vöxt síðustu ár og þá ekki síst á vespum sem flokk­aðar eru sem Létt bifhjól í flokki I og komast ekki hraðar en 25 km. á klst.

Þessar vespur eru hvorki trygg­inga­skyldar né skrán­ing­ar­skyldar og því þurfa eigendur að huga vel að trygg­ingum á þessum tækjum áður en haldið er út í umferð­ina. Hjá VÍS eru slysa­trygg­ingar, ábyrgða­trygg­ingar (tjón sem þú getur valdið öðrum) og tjón á vespunni sjálfri innifaldar í öllum F plús trygg­ingum.

Hafa ber í huga:

  • Trygging gildir aðeins fyrir þá sem falla undir F plús trygg­ing­una, ekki farþega eða aðra sem fá vespuna lánaða. Vert er að nefna að ekki er leyfi­legt að vera með farþega nema ökumaður hafi náð 20 ára aldri og að vespan sé gerð fyrir farþega.

  • Ef átt er við búnað sem takmarkar hraða við 25 km. á klst., fer vespan úr flokknum Létt bifhjól í flokki I og upp í flokk II, fellur trygging í F plús niður.

  • Við hvetjum foreldra, forráða­menn og ungmenni sem hafa hug á kaupum á vespum að kynna sér reglur sem gilda um Létt bifhjól í flokki I á vef Samgöngu­stofu.

Fréttasafn
Deila frétt