Fréttasafn

|

19.12.2019

Verum viss um að ísinn haldi

Það getur verið gaman að leika sér á ísilögðu vatni og tiltölu­lega öruggt ef ísinn er þykkur og heldur vel. Því miður er ísinn þó ekki alltaf öruggur og mikil­vægt að foreldrar upplýsi börnin sín um aðstæður ef svo er.

Það getur verið gaman að leika sér á ísilögðu vatni og tiltölu­lega öruggt ef ísinn er þykkur og heldur vel. Því miður er ísinn þó ekki alltaf öruggur og mikil­vægt að foreldrar upplýsi börnin sín um aðstæður ef svo er. Straum­þungar ár eru sérstak­lega varhuga­verðar en ekki endi­lega víst að allir geri sér grein fyrir því. Það er því mikil­vægt að láta vita ef við sjáum einhvern á óöruggum ís sem hugs­an­lega gerir sér ekki grein fyrir því.

Við fengum mynd senda frá Gunn­laugi Hall­dórs­syni viðskipta­vini okkar þar sem hann sá börn að leik á ís á Hvítá. Viðbrögð hans voru til fyrir­myndar. Hann fór til barn­anna og sagði þeim frá hætt­unni en ef ísinn hefði brostið undan þeim hefði farið illa.

Fréttasafn
Deila frétt