Fréttasafn

|

14.08.2019

Vatns­tjón vegna leka utan frá – Hvað er til ráða?

Dag hvern berast VÍS að meðal­tali 5,5 tilkynn­ingar um vatns­tjón sem eru bætt. Þessi tjón eru þó ekki einu vatns­tjónin sem verða hjá viðskipta­vinum VÍS þar sem fjöl­mörg tjón verða sem trygg­ingar bæta ekki. Þar er algengast að vatn leki utan frá. Til að koma í veg fyrir þau tjón er gott viðhald á húseign gríð­ar­lega mikil­vægt.

Nauð­syn­legt er að huga að þessum þáttum nú, áður en vetur konungur gengur í garð:

  • Sprungur á veggjum verður að lagfæra með viður­kenndum aðferðum þannig að yfir­borð veggjar sé heilt og ósprungið.

  • Glugga þarf að mála áður en málning fer að flagna af og vanda þar undirvinnu. Gæta þess að vatn komist ekki meðfram þétt­ingum á milli glugga og bygg­ing­ar­efnis veggja.

  • Fylla upp í sprungur sem myndast á svölum og bera á svalagólf. Eins að moka snjó af svölum en algengt er að leki út frá þeim þegar snjór þiðnar.

  • Þakklæðning má ekki byrja að losna, ryð komast í plötur eða leki vera á samskeytum eða um nagla­göt.

  • Veggir sem ganga niður í jörð þurfa að vera þurrir og þannig búið um að vatn geti ekki legið á þeim. Yfir­borðs­með­höndlun veggja þarf að vera vatns­frá­hrind­andi, jarð­vegs­efni vel gegnd­ræpt og jarð­vatns­lagnir virkar.

  • Hurðir þurfa að vera þéttar og getur dugað að stilla slútt­járnið í karm­inum eða endur­nýja þétti­borða.

  • Niður­föll verða öll að virka vel sama hvort er á svölum, rennum eða í stéttum. Hreinsa þarf þau fyrir veturinn og eins getur verið gott að setja hita­þráð í rennur ef vatn og snjór á til að frjósa í þeim.

Í viðhaldi húsa má aldrei gleyma öryggi þeirra sem vinna verkið. Best er að hafa vinnupall eða -lyftu í stað stiga til að minnka líkur á falli.

Fréttasafn
Deila frétt