Fréttasafn

|

13.11.2019

Vatns­tjón í sumar­húsum

Það sem af er ári hafa orðið tvö altjón hjá viðskipta­vinum okkar er heitt vatn lak í sumar­húsum þeirra. Eflaust trúir enginn eyði­legg­ing­ar­mætti heits vatns nema að hafa reynt það sjálfur eða komið inn í aðstæður þar sem heitt vatn hefur lekið í einhvern tíma. Skemmd­irnar geta verið nánast eins og eftir eld, meira og minna allt skemmt sem er á staðnum. Orð eins og „ég held svei mér þá að leirtauið sé það eina sem er í lagi“ hafa fallið við þessar aðstæður.

Í upphafi árs var tölu­vert frost víða um land. Þegar slíkt veður er samfellt í nokkurn tíma getur frosið í lögn­unum og þær gefa eftir í kjöl­farið. Oft byrjar ekki að leka fyrr en fer að hlýna á ný, þó það sé ekki algilt. Vegna þessa er gríð­ar­lega mikil­vægt að eigendur þeirra 14.400 sumar­bú­staða sem eru í landinu temji sér að skrúfa alltaf fyrir neyslu­vatn þegar hús þeirra eru yfir­gefin. Hafi hitun húss á lokuðu kerfi ef heitt vatn er notað til húshit­unar og séu með vatns­skynj­ara, mynda­vélar og annan örygg­is­búnað þar sem hægt er að fylgjast með ástandi húss t.d. í gegnum síma.

Húsið á meðfylgj­andi mynd er annað þeirra húsa þar sem altjón varð í ár. Örlög þessa húss var að verða rifið en það var byggt 2003. Talið er að lekið hafi í um 4 vikur áður en lekinn kom í ljós. Það byrjaði með því að nágranni tók eftir að það var lítill snjór í kringum húsið en spáði ekki mikið í það fyrr en næsta dag er hann sá að gufa steig upp frá húsinu.

Vatns­tjón eru 55% tjóna í húseig­enda­trygg­ingu sumar­húsa en 88% bóta­greiðslna. Það helgast af alvar­leika tjón­anna og hversu langur tími líður oft frá því að leki byrjar og þar til hann uppgötvast sem þarf þó alls ekki að telja í mörgum dögum. Algeng­ustu lekarnir eru þegar tengi við blönd­un­ar­tæki og klósett gefa sig eða blönd­un­ar­tækin sjálf fara að leka og það gerist stundum þegar frís í lögn­unum.

Hvernig getum við komið í veg fyrir vatns­tjón?

  • Skrúfa alltaf fyrir inntak heita og kalda neyslu­vatnsins þegar hús er yfir­gefið og tæma viðtengd tæki t.d. með því að skrúfa frá einum vatns­krana inni í húsi þar til hann hefur tæmt sig.

  • Vera með vatns­skynj­ara, mynda­vélar og annan örygg­is­búnað þar sem hægt er að fylgjast með ástandi húss t.d. í gegnum síma.

  • Ef sumarhús er kynnt á veturna þarf að fá upplýs­ingar um það ef rafmagns- og/eða heita­vatns­laust verður þar sem getur kólnað mjög hratt í húsi eða bilanir orðið á kerfum í kjöl­farið.

  • Ef bústaður er hitaður með vatni er best er að hafa lokað hringrás­ar­kerfi og vatns­inntak í sér rými utan­húss.

  • Nota hita­þræði við lagnir sem hætta er á að frjósi í s.s. við lagnir á milli húsa.

  • Ef bústaður er óupp­hit­aður þarf að tappa af vatns­lögnum og salerni fyrir veturinn og setja frostlög í vatns­lása og vatns­sal­erni.

Það er til mikils að vinna, að gera allt sem eykur líkur á því að komið sé að bústaðnum í sama ástandi og hann var þegar skilið var við hann síðast, svo hægt sé að njóta dval­ar­innar í honum.

Fréttasafn
Deila frétt