Fréttasafn

|

29.11.2019

Vakir virkur reyk­skynjari yfir þér og þínum

Reyk­skynj­arar hafa reynst mörgum einstak­lingum lífgjöf. Þrátt fyrir það eru rúmlega 4% heimila sem hafa ekki reyk­skynj­ara. Kostn­aður við slíkan örygg­is­búnað ætti ekki að stoppa neinn en ódýr­ustu skynj­ar­arnir eru í kringum þúsund krónur.

Núna í upphafi aðvent­unnar, þegar brunar á heim­ilum eru flestir, er full ástæða til að vera viss um að skynj­arar heim­il­isins séu í lagi.

  • Ef skynj­arar eru með 9 vatta rafhlöðu þarf að skipta um þær einu sinni á ári. Gott er að miða það við upphaf aðventu og prófa síðan virkni  skynjara eftir að búið er að skipta.

  • Líftími skynj­arans sjálfs eru 10 ár. Fram­leiðsludag má sjá á bakhlið. Ef svo er ekki þá, eru ágætis líkur á að skynj­arinn sé orðinn ansi gamall.

  • Ef skynjari er með 10 ára rafhlöðu, þarf að prófa virkni hans árlega með því að ýta á þar til gerðan hnapp.

  • Skynjari á að vera í öllum herbergjum og rýmum þar sem rafmagns­tæki eru.

Enginn vill kljást við bruna eða afleið­ingar hans. Því hvetjum við alla til að hafa öryggi að leið­ar­ljósi núna á aðvent­unni og yfir hátíð­arnar sem endra­nær.

Fréttasafn
Deila frétt