Fréttasafn

|

17.01.2019

Tveir af hverjum 10 með endur­skin

Á dögunum gerði VÍS könnun á endur­skins­merkja­notkun hjá tveimur ólíkum hópum. Annars vegar í unglinga­deild í grunn­skóla og hins­vegar á vinnu­stað. Ungling­arnir stóðu sig aðeins betur en þeir full­orðnu og munaði þar mestu um endur­skin á töskum.

76% ungling­anna voru ekki með neitt endur­skin en það hlut­fall var öllu verra hjá þeim full­orðnu eða 86% en saman­lagt er þetta hlut­fall 79%.

  • Endur­skin var á töskum 8% unglinga en 1% hjá þeim full­orðnu.

  • 6% unglinga voru með hang­andi endur­skin en 5% full­orð­inna

  • Yfir­hafnir unglinga voru með endur­skini frá fram­leið­anda í 9% tilfella en 6% full­orð­inna

  • Endur­skin á skóm og endur­skin á fleiri en einum stað var frá 0% til 1% hjá báðum hópum

Góður sýni­leiki er gríð­ar­lega mikil­vægur fyrir alla vegfar­endur. Með endur­skini sér ökumaður gang­andi og hlaup­andi einstak­linga allt að fimm sinnum fyrr. Sá auka­tími sem ökumanni gefst til að koma í veg fyrir slys er gríð­ar­lega mikil­vægur. Nú í dimm­asta skamm­deginu er mikil­vægt að allir hugi að sýni­leika sínum, jafnt börn sem full­orðnir, en úrval endur­skins er mikið og ætti ekki að stoppa neinn. Best er þó að velja ávallt fatnað sem er með endur­skini þegar hann er keyptur því þá er ekki hætta á að endur­skinið gleymist eða týnist þó vissu­lega sé hætta á að það dofni með árunum.

Fréttasafn
Deila frétt