Fréttasafn

|

20.08.2019

Tökum fullt tillit

Nú þegar skólar byrja á ný eftir sumarfrí er mikil­vægt að ökumenn aki með gát nærri skólum og taki fullt tillit til þeirra fjöl­mörgu barna sem þar eru á ferð. Sum hver eru nýliðar og ekki endi­lega með allar regl­urnar á tæru á meðan önnur eru orðin verald­arvön og finnst þau ekki endi­lega þurfa að fara eftir öllum regl­unum eða eru einfald­lega allt annars hugar með tónlist í eyra.

Tökum tillit meðal annars með því að:

  • Virða hámarks­hraða

  • Stoppa fyrir þeim sem ætla yfir götu

  • Gera ráð fyrir óvæntum ákvörð­unum barna

  • Ef verið er að skutla barni í skól­ann, hleypa barninu þá út á þar til gerðu stæði ef það er til staðar, en annars gang­stétt­ar­megin.

Á síðasta ári slös­uðust um 20 börn sem gang­andi vegfar­endur samkvæmt tölfræði Samgöngu­stofu. VÍS hvetur ökumenn til að vera með alla athygli við akst­urinn og gefa sér rúman tíma í akst­ur­inn.

Fréttasafn
Deila frétt