Fréttasafn

|

19.12.2019

Tilnefn­ing­ar­nefnd VÍS tekur til starfa

Tilnefn­ing­ar­nefnd VÍS hefur hafið störf í samræmi við samþykktir félagsins og mun hún tilnefna fram­bjóð­endur til setu í stjórn félagsins fyrir stjórn­ar­kjör sem fer fram á aðal­fundi félagsins fimmtu­daginn 19. mars 2020.

Sem hluti af þeirri vinnu að leggja mat á þekk­ing­ar­þörf, samsetn­ingu, hæfni og reynslu stjórn­ar­manna vill nefndin óska eftir ábend­ingum og innleggi frá hlut­höfum um hvaða hluti þeir telja að skipti máli í þessu mati.

Hafi hlut­hafi áhuga á því að koma á fram­færi sínum sjón­ar­miðum skrif­lega varð­andi ofan­greinda hluti, óskar nefndin eftir 5-10 atriðum sem hlut­hafi telur skipta máli að stjórn­ar­maður hafi þekk­ingu og skilning á í starfi. Raðað í mikil­væg­isröð og aðra þætti sem viðkom­andi telur skipta máli þegar kemur að vali á stjórn­ar­mönnum og samsetn­ingu stjórnar.

Hægt er að koma þessum ábend­ingum sem og öðrum ábend­ingum um störf nefnd­ar­innar með því að senda tölvu­póst á , einnig er hægt að bóka fund með nefnd­inni sé þess óskað til að koma þessum ábend­ingum á fram­færi.­Nánari upplýs­ingar um .

Fréttasafn
Deila frétt