Fréttasafn

|

24.06.2019

Tillits­semi númer eitt, tvö og þrjú

Búast má við fjölgun hjól­reiða­fólks á þjóð­veg­unum í vikunni á meðan WOW Cyclothon keppnin stendur yfir. Fyrstu hópar fara af stað í dag þriðjudag en flestir leggja af stað klukkan 19 á morgun. Hjólað verður hring­veginn norður fyrir og endað við Hval­eyr­ar­vatn í Hafnar­firði. Mikil­vægt er að allir ökumenn, bæði vélknú­inna ökutækja og hjólandi, sýni fyllstu tillits­semi.

Við hvetjum ökumenn vélknú­inna ökutækja til að draga úr hraða þegar þeir fara fram hjá hjól­reiða­fólki, sérstak­lega stórra ökutækja þar sem kjöl­sogið getur verið hjól­reiða­fólki erfitt. Jafn­framt er mikil­vægt að gefa þeim hjólandi gott pláss þegar tekið er fram úr, gæta að umferð á móti og vera reiðu­búinn til að bíða í augna­blik með framúrakstur vegna hennar.

Hjól­reiða­fólk þarf líka að huga að sínu öryggi. Aðstæður fyrir það eru ekki alltaf góðar á þessari leið og mikil­vægt að það sé meðvitað um sýni­leika sinn. Leitist við að hjóla í einfaldri röð þegar það er mögu­leiki, halda sig hægra megin á veginum og huga að öruggum skipt­ingum liðs­manna. Eins þarf að tryggja að bílstjóri liðsins sé ávallt vel vakandi og með athyglina við akst­ur­inn.

Fréttasafn
Deila frétt