Fréttasafn

|

13.06.2019

Þetta var bara eitt augna­blik

,,Ég leit augna­blik á símann og svo þegar ég leit aftur upp sá ég að umferðin var stopp fyrir framan mig. Ég hafði ekki tíma til að bregðast við og fór aftan á bílinn fyrir framan mig sem hentist á þann næsta.“ Frásagnir sem þessar þar sem athyglin er ekki við umferðina koma á hverjum degi inn til VÍS. Slys sem aldrei hefðu þurft að eiga sér stað ef viðkom­andi ökumenn hefðu verið með fulla athygli við akst­ur­inn.

Erlendar rann­sóknar sýna að það veldur 35% athygl­is­skerð­ingu að tala í síma við akstur og fjór­falt meiri líkur eru á alvar­legu umferð­ar­slysi. Eins sýna rann­sóknir að það skiptir litlu máli hvort hand­frjáls búnaður sé notaður eða ekki í símtal­inu, sama seinkun verður á viðbrögðum ökumanna. Athyglin skerðist svo mun meira þegar síminn er notaður sem snjall­tæki en þá er ökumaður 23 sinnum líklegri til að lenda í umferð­ar­slysi. Meðal­tíminn sem litið er þá af götunni og á símann eru 4,3 sekúndur og samkvæmt könnun Samgöngu­stofu eru 25% ökumanna sem gera það oft, stundum eða sjaldan.

Munum að mistök okkar í umferð­inni bitnar oft ekki aðeins á okkur sjálfum heldur einhverjum sem var svo óheppinn að vera nærri okkur. Höfum ávallt alla athygli við akst­ur­inn. Munum að eitt augna­blik getur verið nóg til að valda okkur eða öðrum tjóni sem ekki verður aftur tekið.

Fréttasafn
Deila frétt