Fréttasafn

|

12.02.2019

Stefnu­ljós gefin alltof seint

Mikill meiri­hluti ökumanna gaf stefnu­ljós af þjóð­vegi 1 yfir á Bisk­upstungna­braut eða 93%. Það sem var þó áber­andi var hversu seint ökumenn gáfu stefnu­ljósin. Þegar fylgst var með bílum sem óku í átt að Selfossi og voru að beygja inn á Bisk­upstungna­brautina gáfu 60% þeirra stefnu­ljósin of sein

Fyrir nokkru gerði VÍS könnun á stefnu­ljósa­notkun ökumanna sem beygðu af þjóð­vegi 1 yfir á Bisk­upstungna­braut rétt vestan við Selfoss.

Mikill meiri­hluti ökumanna gaf stefnu­ljós eða 93%. Það sem var þó áber­andi var hversu seint ökumenn gáfu stefnu­ljósin. Þegar fylgst var með bílum sem óku í átt að Selfossi og voru að beygja inn á Bisk­upstungna­brautina gáfu 60% þeirra stefnu­ljósin of seint þ.e. um leið og þeir beygðu inn á fráreinina eða eftir að komið var inn á hana.

Stefnu­ljósin eru örygg­is­tæki í umferð­inni. Hafa þann tilgang að upplýsa ökumenn í kring ef á að breyta stefnu ökutækis. Það er því til lítils að setja stefnu­ljósið á þegar komið er inn á frárein­ina. Það þarf að gera einhverjum metrum áður en komið er að henni.

Samkvæmt könn­unum Samgöngu­stofu er skortur á stefnu­ljósa­notkun annarra ökumanna það sem pirrar ökumenn mest í umferð­inni. Við hvetjum alla til að líta í eigin barm og skoða hvort hægt sé að bæta stefnu­ljósa­notk­unina og draga með því t.d. úr líkum á aftaná­keyrslum sem eru næst algeng­ustu ökutjónin hjá VÍS.

Fréttasafn
Deila frétt