Fréttasafn

|

22.05.2019

Snarpar vind­hviður óvinur húsbíla

Með hækk­andi sól birtast húsbílar á ný eftir vetur­inn. Því miður eiga slysin sér stað á þessum ökutækjum líkt og öðrum og eru bakktjón þar algeng­ustu. Önnur algeng tjón eru aftaná­keyrslur, ekið á kyrr­stæða bifreið t.d. við vegbrún og á bíla­stæðum, foktjón og þegar ekið er á umferð­ar­mann­virki eða aðra hluti.

Þó bakktjónin séu algengust eru þau sjaldnast alvar­leg. Það verða slysin aftur á móti þegar bíll fer utan vegar og spilar vindur þar oft inn í. Húsbílar taka mikinn vind á sig og eru dæmi um að kassar bílanna hrein­lega splundrist þegar bíll hefur fokið útaf.

Til að auka öryggi sitt og sinna er gott að hafa eftir­far­andi í huga á ferðum um landið í sumar:

  • Gæta að nægj­an­legri hvíld fyrir ferð.

  • Hafa eldvarna­teppi og virkt slökkvi­tæki, reyk- og gasskynjara til staðar.

  • Athuga vind og hviður áður en lagt er af stað.

  • Ef ekið er í miklum vindi, draga úr hraða eða stoppa og leggja upp í vindinn og muna að í 24 m/s vindi geta hviður farið í 30-35 m/s.

  • Tryggja að allir noti bílbelti.

  • Vera með athyglina við akst­ur­inn.

  • Virða hámarks­hraða og aðstæður hverju sinni.

  • Hafa nægt bil milli bíla.

  • Hægja á sér þegar bílar mætast á malar­vegi m.a. til að minnka líkur á steinkasti.

  • Bakka í stæði frekar en út úr þeim og jafnvel hafa einhvern úti til að segja til.

Fréttasafn
Deila frétt