Fréttasafn

|

31.05.2019

Slys við leik á trampólíni algeng

Með hækk­andi sól má víða sjá trampólín í görðum lands­ins. Ekki skrítið þar sem leikur á því er frábær hreyfing sem þjálfar jafn­vægi og samhæf­ingu, styrkir vöðva og bætir geð.

Mikil­vægt er að fara eftir leið­bein­ingum til að koma í veg fyrir slys sem eru nokkuð algeng. Þau eru allt frá því að vera litlir pústrar upp í bein­brot og höfuð­högg.

  • Hafa trampólín á mjúku undir­lagi s.s. grasi og ekki hafa steina eða þess háttar í kring.

  • Fara eftir leið­bein­ingum um uppsetn­ingu.

  • Festa trampólínið tryggi­lega við jörðu.

  • Virða þá þyngd sem trampólínið er gefi upp fyrir.

  • Hafa hlíf yfir gorma og örygg­isnet og loka inngang­sopi þess þegar hoppað er.

  • Fylgjast með ástandi gorma sem eiga að vera heilir og jafnstífir.

  • Kenna réttar leik­reglur en sú mikil­væg­asta er að aðeins einn hoppi í einu en flest slysin verða þegar það er ekki virt.

Fréttasafn
Deila frétt