Fréttasafn

|

11.12.2019

Skrif­stofur VÍS á Akur­eyri, Egils­stöðum og Sauð­ár­króki verða lokaðar í dag, 11. desem­ber, vegna veðurs.

Þar sem landið er eitt þjón­ustu­svæði hjá okkur og fyrir­spurnum svarað frá öllum skrif­stofum geta þessar lokanir haft áhrif á þjón­ustu­getu okkar í dag. Við gerum okkar allra besta við að svara eins fljótt og auðið er en biðjum þá viðskipta­vini sem bíða eftir svörum að sýna okkur biðlund.

Í neyð­ar­til­vikum hringir þú strax í 112

Þar sem landið er eitt þjón­ustu­svæði hjá okkur og svarað er af öllum skrif­stofum geta þessar lokanir haft áhrif á þjón­ustu­getu okkar í dag. Við gerum okkar allra besta við að svara eins fljótt og auðið er en biðjum þá viðskipta­vini sem bíða eftir svörum að sýna okkur biðlund.

Við bendum fólki á að nýta sér Mitt VÍS, þar sem meðal annars er hægt að tilkynna tjón, fá tilboð, skoða trygg­ingar og dreifa greiðslum.

  • Í neyð­ar­til­vikum hefur þú strax samband við 112.

  • Ef ekki er um neyð­ar­tilvik að ræða snúa fyrstu viðbrögð að því að forða frekara tjóni. Hafðu velferð þína og viðstaddra ávallt í huga.

  • Öll tjón má tilkynna inn á vis.is.

  • Neyð­arsími okkar vegna neyð­ar­til­fella er 5605070.

  • Ef um alvarleg slys eða bráð veik­indi á ferða­lagi erlendis hefur þú beint samband við SOS neyð­ar­þjón­ustu í síma 0045-7010-5050.

  • Gangið vel frá öllum lausa­munum utan­dyra.

  • Lokið öllum gluggum og hurðum ræki­lega.

  • Við mælum með að setja límband í x á stórar rúður sem eru vind­megin.

  • Gætið ykkar þegar hurðir eru opnaðar að þær fjúki ekki upp.

  • Dveljið innan­dyra og skjól­megin í húsinu.

  • Reynið að fresta öllum manna­ferðum þangað til veðrið gengur yfir.

  • Fylgist vel með tilkynn­ingum og fréttum.

Fréttasafn
Deila frétt