Fréttasafn

|

23.09.2019

Pössum bilið

Aftaná­keyrslur eru næst algeng­ustu ökutækja­tjón VÍS eða tæplega fjórð­ungur. Í þeim verða gjarnan slys þar sem áverkar eru ekki sýni­legir á slysstað en geta haft alvar­legar afleið­ingar til fram­tíðar fyrir viðkom­andi, með verkjum og skertri hreyfi- og vinnu­getu.

Til að koma í veg fyrir þessi slys þarf að vera með rétt stilltan höfuð­púða, gæta að hraða, hafa alla athygli við akst­urinn og ekki hvað síst að tryggja nægt bil á milli bíla. Láta það síðan ekki pirra sig þó einhver fari í bilið heldur bara lengja það aftur.

Nú þegar um­ferð í þétt­býli hefur þyngst á ný eftir skóla­byrjun er um að gera að gefa sér mínútu og horfa á meðfylgj­andi mynd­band. Það getur komið í veg fyrir að þú lendir aftan á bílnum fyrir framan þig. 

Fréttasafn
Deila frétt