Fréttasafn

|

26.03.2019

Óskar Hrafn nýr samskipta­stjóri VÍS

Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið ráðinn samskipta­stjóri VÍS. Óskar tekur við af Andra Ólafs­syni sem hverfur til starfa á öðrum vett­vangi.

Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið ráðinn samskipta­stjóri VÍS. Óskar tekur við af Andra Ólafs­syni sem hverfur til starfa á öðrum vett­vangi.

Óskar Hrafn hefur áralanga reynslu af fjöl­miðlum, var meðal annars frétta­stjóri á Stöð2, Vísi.is og DV.  Hann var um tíma yfir­maður Stöðvar 2 Sport en hefur að mestu unnið sjálf­stætt sem ráðgjafi undan­farin miss­eri.

Hjá VÍS mun Óskar Hrafn stýra miðlun upplýs­inga til fjöl­miðla og mark­aðs­að­ila. Til viðbótar mun hann bera ábyrgð á mótun ófjár­hags­legrar upplýs­inga­gjafar og samfé­lags­ábyrgð félags­ins. 

Hann mun hefja störf í byrjun apríl.

 

Fréttasafn
Deila frétt