Fréttasafn

|

20.12.2019

Öryggi heima og á ferð­inni

Eflaust ætla margir að vera á ferð­inni milli lands­hluta til að hitta ættingja og vini um hátíð­arnar. Við hvetjum alla til að skoða vel færð og veður áður en farið er af stað. Eins og staðan er núna er t.a.m. ekki mælt með ferða­lögum á laug­ardag og sunnudag á Norð­ur-, Austur- og Suðaust­ur­landi en þá daga er gul viðvörun á því svæði.

Við hvetjum líka alla til að gleyma ekki eldvörn­unum á þessum tíma árs þegar brunar á heim­ilum eru flestir. Farið með gát sér í lagi við elda­mennsku og opinn eld sem eru algeng­ustu orsakir bruna nú í desember og tryggið að virkir reyk­skynj­arar vaki yfir öllum, eldvarna­teppi sé til staðar í eldhúsi og yfir­farið slökkvi­tæki.

Með von um að allir eigi örugga og gleði­lega hátíð. 

Fréttasafn
Deila frétt