Fréttasafn

|

21.03.2019

Oft hlaðið á óöruggan hátt!

Eldur sem upp kom í tveimur rafmagns­bílum og olli því að þeir eru gjör­ónýtir orsak­aðist að því að venjuleg fram­leng­ing­ar­snúra var notuð við hleðslu bílanna. Hefð­bundin fram­leng­ing­ar­snúra þolir ekki það mikla álag sem verður þegar bíll er hlaðinn og hitnar gríð­ar­lega sem getur endað með íkveikju.

Svo virðist sem nokkuð algengt sé að bílar séu hlaðnir með óöruggum hætti. Að tenglar, lagnir og öryggi í rafmagn­stöflu séu ekki gerð fyrir álagið. Það sem af er ári eru 21% nýskráðra bílar með rafhleðslu­tengli en tæp­lega 9.400 slíkir bílar eru hér á landi. Gríð­ar­lega mikil­vægt er að rétt sé staðið að hleðslu til að koma í veg fyrir bruna. Við hvetjum alla til að gæta vel að þeim málum:

  • Fáið löggiltan rafverk­taka með þekk­ingu á hleðslu rafbíla til að fara yfir málin áður en byrjað er að hlaða bíl, sama hvaða hleðslu­að­ferð er notuð þ.e. hleðslu­stöð eða hleðslu­tæki bíls

  • Hver teng­istaður má einungis hlaða einn rafbíl í einu.​

  • Hver teng­istaður skal varinn með yfir­straum­varn­ar­búnaði (öryggi í rafmagn­stöflu) sem einungis ver þennan tiltekna teng­istað.

  • Hver teng­istaður skal varinn með bilun­ar­straums­rofa (lek­a­straums­rofa) sem einungis ver þennan tiltekna teng­istað.

  • Útleys­is­straumur bilun­ar­straums­rofans skal vera 30mA og í flestum tilfellum þarf rofinn að vera af gerð B - ekki má nota gerð AC sem er algeng­asti rofinn á mark­aðnum (merk­ingar á viðeig­andi rofum í rafmagn­stöflu).

  • Strang­lega er bannað að nota fram­leng­ing­ar­snúru, fjöltengi eða önnur „millistykki“ við hleðslu rafbíla.

  • Huga þarf að eftir­far­andi með raflögnina sem nota á:

  • er best og lang öruggast að hlaða bíl með sérhæfðri hleðslu­stöð með fast­tengdri raflögn en nokkrir aðilar selja slíkar stöðvar hér á landi.

  • Viðkom­andi teng­istaður skal uppfyll­a skil­yrðin sem getið er hér að ofan.

  • Nota jarð­tengdan tengil allt að 32A sem hentar til hleðslu rafbíla.

  • Ekki má nota hefð­bundna heim­ilis einfasa 16A tengla nema hleðslu­straum­ur hleðslu­stöðvar sé takmark­aður við 10A að hámarki.

  • Þyngd stjórnbox á hleðslu­snúru má ekki hanga í tengli þar sem tengill og stjórnbox geta hitnað við það.

  • Ef þar til gerð hleðslu­stöð er ekki notuð heldur hlaðið með hleðslu­tæki bíls þarf að huga að:

  • Ekki nota hleðslu­snúru eða annan búnað sem hefur skemmst.

Fréttasafn
Deila frétt