Fréttasafn

|

09.12.2019

Ofsa­veður á þriðju­daginn

Á þriðju­daginn er búist við ofsa­veðri og appel­sínugul viðvörun er yfir flestum lands­hlutum.

Spáð er um og yfir 30 m/sek þegar verst lætur þar sem appel­sínugul viðvörun gildir. Við þessar aðstæður er hættu­legt að vera á ferð­inni og líklegt að mörgum vegum verði lokað. Við mælum með að fylgjast vel með á vedur.is og vega­ger­d­in.is

Það er mikil­vægt að huga að lausa­munum utan­dyra og koma þeim í skjól. Fara þarf yfir alla glugga og loka þeim vel. Það þarf einnig að gæta sín þegar hurðir eru opnaðar að þær fjúki ekki upp.

Með forvarna­kveðju,
starfs­fólk VÍS

Fréttasafn
Deila frétt