Fréttasafn

|

01.02.2019

Nú er frost á fróni

Reynsla VÍS sýnir að í frosti eins og hefur verið undan­farið og verður eitt­hvað áfram getur verið hætta á að frjósi í lögnum sumar­húsa og í loftræsti­kerfum fyrir­tækja.

Reynsla VÍS sýnir að í frosti eins og hefur verið undan­farið og verður eitt­hvað áfram getur verið hætta á að frjósi í lögnum sumar­húsa og í loftræsti­kerfum fyrir­tækja. Til að auka á þessa hættu eiga sumar veitur fullt í fangi með að anna eftir­spurn á heitu vatni á sínu svæði. Vegna þessa viljum við hvetja sumar­húsa­eig­endur, sér í lagi þá sem eru með upphituð hús og umsjón­ar­menn fast­eigna hjá fyrir­tækjum þar sem eru loftræsti­kerfi að fylgjast með húseignum sínum.  

Skoða þarf hvort þokka­legur hiti sé í húsinu, hvort nægt rennsli sé á vatni og þrýst­ingur eðli­legur á mæli lagna­grindar. Gott er að skilja vaska­skápa eftir opna sérstak­lega ef þeir eru á útvegg og tryggja að skrúfað sé fyrir neyslu­vatnið og lagnir þeirra tæmdar þegar hús er yfir­gefið. Eins er gott að hafa öryggis­kerfi sem lætur vita ef breyting verður á hita og raka innan­dyra.

Ef eitt­hvað er ekki eins og á að vera er mikil­vægt að finna rót vand­ans. Ef kalda vatnið hefur frosið getur hjálpað að láta heita vatnið renna í einhvern tíma. Annars þarf að finna út hvar frosið er og hita upp það svæði. Ef ekkert gengur til að koma vatni aftur á verður a.m.k. að skrúfa fyrir neyslu­vatnið áður en húsið er yfir­gefið.

Fréttasafn
Deila frétt