Fréttasafn

|

15.05.2019

Mótor­hjóla­slysum fækkar milli ára

Það er ánægju­legt að segja frá því að mótor­hjóla­slysum fækkaði milli áranna 2017 og 2018 hjá viðskipta­vinum okkar. Algeng­ustu slysin voru fall af hjóli og útafa­kstur en þar á eftir komu aftaná­keyrslur og hlið­ar­árekstrar, gjarnan á gatna­mótum.

Það er mikil­vægt að allir í umferð­inni geri það sem í þeirra valdi stendur til að forðast þessi slys þar sem þau valda oft alvar­legum meiðslum.

Gagn­legir punktar fyrir bifhjóla­fólk:

  • Ekki fara á hjól án viður­kennds örygg­is­bún­aðar.

  • Virða hámarks­hraða og aka miðað við aðstæður.

  • Tryggja sýni­leika með skær­litum fatn­aði.

  • Ganga út frá að ekki sé víst að aðrir vegfar­endur hafi séð þig.

  • Stað­setja þig á vegi þar sem aðrir vegfar­endur sjá hjólið best.

  • Vera ávallt viðbúinn óvæntum ákvörð­unum annarra vegfar­enda.

  • Gæta þín á sandi og holum í malbiki.

  • Lána ekki hjólið þar sem algengt er að slys verða þegar fólk er á láns­hjólum.

Gagn­legir punktar fyrir ökumenn annarra ökutækja:

  • Horfa vel eftir bifhjólum á gatna­mótum og þegar komið er inn á götur og vegi af aðreinum og afleggj­urum.

  • Líta sérstak­lega eftir mótor­hjólum þegar skipt er um akrein.

Fréttasafn
Deila frétt