Fréttasafn

|

22.07.2019

Mótor­hjóla­slys tvöfalt fleiri

Fjöldi tilkynntra bifhjóla­slysa til VÍS er tvöfalt hærri nú en á sama tíma í fyrra og nálgast heild­ar­fjölda bifhjóla­slysa ársins 2018.

Algeng­ustu slysin eru fall af hjóli og útafa­kstur en þar á eftir koma aftaná­keyrslur og hlið­ar­árekstrar, gjarnan á gatna­mótum. Líkams­tjón eru í flestum þessara slysa og alvarleg í mörgum þeirra. Það er mikil­vægt að allir í umferð­inni geri það sem í þeirra valdi stend­ur til að forðast þessi slys og láti góða veðrið ekki hafa áhrif á hraða og athygli sína. 

Bifhjóla­fólk:

  • Fari ekki á hjól án viður­kennds örygg­is­bún­aðar.

  • Virði hámarks­hraða og aki miðað við aðstæður.

  • Tryggi sýni­leika sinn með skær­litum fatn­aði.

  • Gangi út frá að ekki sé víst að aðrir vegfar­endur hafi séð það.

  • Stað­setji sig á vegi þar sem aðrir vegfar­endur sjá hjólið best.

  • Sé ávallt viðbúið óvæntum ákvörð­unum annarra vegfar­enda.

  • Gæti sín á sandi og holum í malbiki.

  • Láni ekki hjólið þar sem algengt er að slys verði þegar fólk er á láns­hjólum.

Ökumenn annarra ökutækja:

  • Muni að bifhjól virðast oft fjær en raunin er.

  • Líti sérstak­lega eftir bifhjólum á gatna­mótum og við skipt­ingu akreina.

  • Noti stefnu­ljós til að segja til um stefnu­breyt­ingar sínar.

  • Gæti þess að dagljósa­bún­aður sé tendr­aður bæði að framan og aftan.

Við hvetjum alla ökumenn til að fara með gát og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að þessi slysa­þróun haldi ekki áfram út árið.

Fréttasafn
Deila frétt