Fréttasafn

|

23.12.2019

Mikil­vægt að moka snjó af svölum

Á hverjum degi berast VÍS um sex tilkynn­ingar um vatns­tjón sem eru bætt. Ekki eru þó ekki öll vatns­tjón bætt þar sem fjöl­mörg tjón verða þegar vatn lekur að utan t.d. inn um sprungur en slík tjón eru ekki bætt. Nú þegar mikill snjór er víða er mikil­vægt að húseig­endur geri það sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir slíkan leka.

Mikil­vægt er að:

  • Moka snjó af svölum

  • Moka snjó frá húsveggjum

  • Moka snjó og klaka frá niður­föllum

  • Tryggja að niður­fall sé ekki stíflað

  • Gæta að vatns­söfnun á þaki, sér í lagi ef þak er flatt

Uppfært 27. desember

Þegar fór að hlána eftir jólin fór­um við því miður að fá fregnir af tilvik­um þar sem vatn var að leka inn í híbýli. Þessar myndir voru teknar í íbúð þar sem lak frá svölum á hæðinni fyrir ofan. Við hvetjum alla til að gera ráðstaf­anir s.s. að moka snjó og tryggja að niður­föll virki. Koma með því í veg fyrir þessi tjón sem trygg­ingar taka ekki á.

Fréttasafn
Deila frétt