Fréttasafn

|

31.01.2019

Mikil­vægt að láta vita strax

Samkvæmt tölfræði VÍS hefur slysum þar sem ekið er á hross fækkað síðustu ár. Undan­farna þrjá mánuði hefur orðið breyting þar á og vert að vekja athygli ökumanna á því að nokkur slík slys hafa verið tilkynnt til VÍS.

Samkvæmt tölfræði VÍS hefur slysum þar sem ekið er á hross fækkað síðustu ár. Undan­farna þrjá mánuði hefur orðið breyting þar á og vert að vekja athygli ökumanna á því að nokkur slík slys hafa verið tilkynnt til VÍS á þeim tíma. Slysin hafa átt sér stað í myrkri og hvetur VÍS ökumenn til að nota háu ljósin ef enginn bíll er fyrir framan og tilkynna strax til Neyð­ar­lín­unnar ef hross eru sjáanleg utan girð­ingar. Eins er mikil­vægt að eigendur hesta tryggi að girð­ingar þeirra séu heldar, hlið sett við rist­ar­hlið ef þau eru full af snjó og ef girð­ingar eru komnar undir snjó að gera ráðstaf­anir eins og að skipta um beit­ar­hólf.

Oftar en ekki verður mikið tjón í þessum slysum. Af þeim sem nýlega eru tilkynnt til VÍS hefur sem betur fer ekki orðið alvarleg slys á fólki en í öllum tilvikum hefur þurft að aflífa hrossin eða þau drepist í slysinu sjálfu og draga bíl af slysstað.

Fréttasafn
Deila frétt