Fréttasafn
|26.08.2019
Margir nýliðar á ferð
Rúmlega 4.500 börn byrja í 1. bekk þetta skólaárið. Mikil spenna er hjá mörgum þeirra og margt nýtt að gerast. Umferðin getur verið einn af þeim þáttum. Frá því að hafa alltaf fengið fylgd í leikskólann í að fara ein og óstudd í skólann.

Mikilvægt er að foreldrar fylgi þeim vel eftir og getur verið gott að hafa eftirfarandi í huga:
Fylgja þeim í skólann fyrstu dagana
Kenna þeim að velja öruggustu leiðina sem er ekki endilega styst
Fara yfir að það þurfi alltaf að fara eftir umferðarreglunum en ekki bara stundum
Ef fara þarf yfir götu, kenna hvernig það sé gert á öruggan hátt
Fara yfir mikilvægi þess að fara meðfram bílastæðum en ekki þvert yfir þau
Tryggja að endurskin sé til staðar á tösku og utanyfirfatnaði
Ef farið er á hjóli þá sé rétt spenntur hjálmur á höfði
Ef ferðast er í bíl, sé ávallt setið á viðeigandi öryggisbúnaði með beltið spennt
Þó hér sé talað um börn sem eru að byrja í skóla þá er margt af þessum lista sem á við allan grunnskólaaldur. Hjá eldri krökkum getur bæst við umræða um hegðun á vespum og truflunina sem heyrnartól og sími geta verið í umferðinni.