Fréttasafn

|

07.02.2019

Ísaga fékk forvarna­verð­launin

Ísaga hreppti Forvarn­ar­verð­laun VÍS sem afhent voru við hátíð­lega athöfn á Forvarna­ráð­stefnu VÍS sem haldin var á Hilton Nordica í gær.

Ísaga hreppti Forvarna­verð­laun VÍS sem afhent voru við hátíð­lega athöfn á Forvarna­ráð­stefnu VÍS sem haldin var á Hilton Nordica í gær.

Ísaga er fyrir­mynd­ar­fyr­ir­tæki í forvörnum og örygg­is­málum og starfar eftir nákvæmu örygg­is­stjórn­un­ar­kerfi móður­fyr­ir­tæki síns. Öll starf­semi og verk­ferlar einkennist af hárri öryggis­vitund starfs­manna sem endur­speglast í öflugri örygg­is­menn­ingu.

Þetta var í tíunda sinn sem Forvarna­ráð­stefna VÍS var haldin en á meðal fyrir­lesara var Brandon Wiseman, yfir­maður örygg­is­mála hjá Coca-Cola Swire í Banda­ríkj­unum. Ráðstefnan er vett­vangur til að ræða örygg­ismál í atvinnu­lífinu og leiðir til að fækka vinnu­slysum. Ráðstefnan er fjöl­sótt­asti viðburður sinnar tegundar hér á landi.

Auk Ísaga fengu RB og Narfastaðir Guest­house viður­kenn­ingar fyrir árangur í örygg­is­málum. Hjá RB eru örygg­ismál starfs­manna samtvinnuð við ríkar áherslur í upplýs­inga­tækniör­yggi fyrir­tæk­isins og forsvars­menn Narfastaða hafa sýnst að það þarf ekki að kosta miklu til að efla öryggi í  þjón­ustu og starf­semi í ferða­þjón­ustu.

Fréttasafn
Deila frétt