Fréttasafn

|

16.04.2019

Hvernig tryggir þú vespu?

Um leið og vorar í lofti fara vespurnar á stjá. Margir eru nú þegar búnir að draga þær fram og nýir eigendur hafa bæst í hópinn frá síðasta ári. Við það tæki­færi er gott að minna á hvernig trygg­inga- og örygg­is­málum er háttað.

Um leið og vorar í lofti fara vespurnar á stjá. Margir eru nú þegar búnir að draga þær fram og nýir eigendur hafa bæst í hópinn frá síðasta ári. Við það tæki­færi er gott að minna á hvernig trygg­inga- og örygg­is­málum er háttað.

Vespur sem flokkast sem létt bifhjól í flokki I, þ.e. vespur sem fara ekki hraðar en 25 km/klst., eru ekki vátrygg­inga­skyldar líkt og önnur ökutæki. Hjá okkur falla þær undir F plús fjöl­skyldu­trygg­inguna sem bætir:

  • Slys ef verið er með F plús 2, 3 og 4 en mikil­vægt er að hafa í huga að slysa­trygging gildir einungis fyrir þá einstak­linga sem tilheyra F plús trygg­ingu fjöl­skyld­unnar. Hún gildir því ekki fyrir aðra sem kunna að aka vespunni eða eru farþegar ef þeir eru ekki með F plús trygg­ingu.

  • Þjófnað á læstum vespum.

  • Tjón á vespum.

  • Tjón sem er ökumaður veldur öðrum séu þau skaða­bóta­skyld.

Bætur geta ávallt verið skertar ef ökumaður sýnir stór­kost­legt gáleysi.

  • Ökumaður þarf að hafa náð 13 ára aldri.

  • Skylda er að vera með hjálm á vespum.

  • Aka má á götum en mælt er með að aka á göngu­stígum, hjóla­stígum eða gang­stétt og taka þar fullt tillit til annarra vegfar­anda.

  • Einungis 20 ára og eldri mega gefa far og verður hjólið þá að vera gert fyrir farþega.

  • Ef innsigli er rofið svo hægt sé að keyra vespuna hraðar en 25 km/klst. telst hún ekki í flokki léttra bifhjóla í flokki I og þá gildir F plús trygg­ingin ekki. Tryggja þarf vespur sem komast hraðar en 25 km/klst. í ökutækja­trygg­ingu og þá er rétt­inda krafist.

Fréttasafn
Deila frétt