Fréttasafn

|

20.05.2019

Hjálm­a­notkun áfram nokkuð góð

Síðustu ár hefur VÍS gert könnun á notkun hjálma hjá hjól­reiða­fólki í Reykjavík í tengslum við Hjólað í vinnuna. Á dögunum var slík könnun gerð og var 90% hjól­reiða­fólks með hjálm á höfði. Síðustu fimm ár hefur þetta hlut­fall verið á bilinu 88% til 92%.

Fjöldi hjól­reiða­fólks í könn­un­inni var 725 og er það tölu­verð fjölgun frá því í fyrra er 407 fóru fram hjá taln­inga­fólki en það er nokkuð í takt við fjölgun þátt­tak­enda á milli ára í Hjólað í vinn­una.

Sýni­leikafatn­aður hefur einnig verið skráður og var rúmlega þriðj­ungur hjól­reiða­fólks í slíkum fatn­aði. Jákvætt er að sjá að hjól­reiða­fólk hugi að sýni­leika þar sem mörg hjól­reiða­slys verða þegar aðrir vegfar­endur sjá hjól­reiða­menn ekki í tæka tíð.

Þrátt fyrir að höfuð­högg séu ekki algeng­ustu áverk­arnir þá sýna erlendar rann­sóknir að í alvar­leg­ustu slys­unum verða höfuð­högg og að notkun hjálma minnki líkur á þeim um allt að 79%. En til að svo megi vera verður hjálm­urinn að vera í lagi, af réttri stærð og rétt stilltur. Almennt er líftími hjálma fimm ár frá fram­leiðslu­degi og þrjú ár frá sölu­degi og verður hann að sitja beint ofan á höfði, eyrun að vera í miðju V-formi band­anna og einungis einn til tveir fingur eiga að komast undir höku­bandið.

Fréttasafn
Deila frétt