Fréttasafn

|

07.03.2019

Helm­ingi hjól­barða ábóta­vant

Meira en helm­ingur allra bíla er með of lítinn, mikinn eða mismikinn loft­þrýsting í dekkjum samkvæmt nýrri könnun sem VÍS gerði á ástandi dekkja um 100 tjóna­bíla hjá sér. Þetta verður að teljast áhyggju­efni því loft­þrýst­ingur hefur áhrif á stöð­ug­leika, heml­un­ar­vega­lengd og þar af leið­andi almennt öryggi ökutækja.

Könnun VÍS leiddi einnig í ljós að of margir ökumenn eru ekki með nægj­an­lega góð dekk undir bílunum sínum. Til dæmis voru 14% ökutækja með hjól­barða sem höfðu minna en 3 mm dekkja­mynstur, en 3 mm er það lágmarks viðmið sem sett hefur verið í reglum um mynst­urs­dýpt yfir vetr­ar­tíma. Þá voru 8% ökutækja á sumar­dekkjum að hluta eða öllu leyti, þrátt fyrir að könn­unin hafi verið gerð um hávetur.

VÍS hefur frá 2012 gert kann­anir á dekkja­búnaði tjóna­bíla að vetri til og má sjá mikla breyt­ingu til batn­aðar sér í lagi eftir 2014 þegar reglur um mynst­urs­dýpt hjól­barða yfir vetr­ar­tíma voru hertar.

Árið í fyrra kom mjög vel út miðað við fyrri kann­anir en í ár er annað upp á teningnum því samkvæmt könn­un­inni sem gerð var núna í febrúar komu allar mælingar um ástand dekkja verr út en árið á undan.

Helstu niður­stöður könn­un­ar­innar eru annars þessar:

  • 86% bíla var með dekkja­mynstur yfir 3 mm var 92% í fyrra

  • 87% var með sömu tegund dekkja undir bílnum var 92% í fyrra

  • 8% var á sumar­dekkjum að hluta eða öllu leyti var 2% í fyrra

  • 53% var með of lítinn, mikinn eða misjafnan loft­þrýsting í dekkjum var 43% í fyrra

  • 45% var á negldum dekkjum í ár

  • 45% á vetrar- og heils­árs­dekkjum og þar af 29% á dekkjum sem voru merkt bæði

Fréttasafn
Deila frétt