Fréttasafn

|

25.07.2019

Hækkum ekki töluna

Umferðarör­yggi er mörgum hugleikið enda erum við öll þátt­tak­endur í umferð­inni á einn eða annan hátt. Til VÍS eru tilkynnt að meðal­tali 33 ökutækja­tjón dag hvern. Allt frá litlu nuddi upp í mjög alvarleg slys.

Við viljum ekki að umferðin taki líf og heilsu einstak­linga en undan­farin 10 ár hafa 133 látist í umferð­inni. Að meðal­tali 13 á ári, tala sem við viljum sjá lækka og fara niður í núll. Nú þegar ein af stærri ferða­helgum ársins er að ganga í garð er gott að hafa í huga hverjar helstu ástæður bana­slysa í umferð­inni eru:

  • Of mikill hraði miðað við aðstæður

  • Athygli ekki við akst­urinn

  • Þreyta

  • Beltin ekki spennt

  • Neysla áfengis og annarra vímu­efna

Högum akstri með þetta í huga og með það að mark­miði að allir komi heilir heim.

 

Fréttasafn
Deila frétt