Fréttasafn

|

01.07.2019

Góður undir­bún­ingur mikil­vægur

Göngu­ferðir um fjöll og firn­indi heilla marga. Til að allt gangi að óskum er góður undir­bún­ingur mikil­vægur þar sem erfitt getur verið að bregðast við þegar á hólminn er komið. Það á líka við þó eigi bara að fara í stutta dags­ferð.

Fyrir dags­ferðir er hægt að styðjast við eftir­far­andi minn­islista:

  • Stik­aðar leiðir eru öruggari

  • Kynna sér stað­hætti göngu­leiðar

  • Skoða veður­spár

  • Góðir göngu­skór og göngu­sokkar

  • Göngustafir

  • Fleira en eitt lag af fatnaði

  • Vind- og vatns­held skel

  • Húfa og vett­lingar

  • Vatns­brúsi

  • Heitur drykkur í hita­brúsa

  • Orku­ríkt nesti

  • Sólgler­augu og sólar­vörn

  • Full­hlaðinn sími ásamt auka hleðslu

  • Átta­viti og kort

  • Sjúkra­bún­aður

Veðrið er það sem oftast hefur áhrif á göngu­ferðir. Með réttum búnaði og þekk­ingu eru mun meiri líkur á að allt gangi vel og allir séu sáttir í lok göngu. 

Fréttasafn
Deila frétt