Fréttasafn

|

02.05.2019

Góð dekk yfir sumarið mikilvæg

Þó svo að tími sumar­dekkja sé kominn fyrir nokkru eru enn margir á nöglum. Búast má við að a.m.k. helm­ingur ökumanna séu búnir eða eigi eftir að skipta um dekk á bílum sínum ef miðað er við hlut­fall þeirra sem voru á negldum dekkjum í síðustu könnun VÍS á stöðu dekkja á tjóna­bílum í febrúar.

Þeir sem ætla að vera áfram á þeim dekkjum sem ekið var á í vetur þurfa að skoða ástand þeirra. Tryggja að mynstur sé gott, hreinsa af þeim tjöru og tryggja að loft­þrýst­ingur sé réttur en svo var einungis í 47% tilvika í síðustu könnun.

Góð dekk í sumar stuðla að:

  • Styttir heml­un­ar­vega­lengd

  • Meiri stöðu­leika

  • Minni líkum á að bíll fljóti upp í bleytu

  • Minni eyðslu

Akstur á góðum dekkjum minnkar líkur á slysum en það gerir líka góður akstur ökumanns. Þar skipta þættir eins og hraði, athygli og bil yfir í næsta bíl máli.

Fréttasafn
Deila frétt