Fréttasafn

|

20.11.2019

Gerum allt til að koma í veg fyrir bruna

Í aðdrag­anda aðventu eru umræður um eldvarnir heim­il­isins mikil­vægar. Flestir brunar á heim­ilum verða í kringum hátíð­arnar en því miður hafa þeir einnig verið tíðir undan­farna tvo mánuði. Sérfræð­ingur okkar í forvörnum ræddi eldvarnir á Bylgj­unni í vikunni og hvetjum við alla til að hlusta á viðtalið. Það er alltaf gott að láta minna sig á hvað þarf að hafa í huga því enginn vill að eldur kvikni á heim­il­inu.

Elda­mennska

  • Yfir­gefa ekki eldhúsið meðan verið er að elda.

  • Ekki geyma neitt ofan á elda­vél­inni.

  • Nota örygg­is­læs­ingar þegar elda­vélin er ekki í notkun.

Kerti

  • Rafhlöðu­kerti eru alltaf öruggust en ef lifandi kerti eru notuð þarf að gæta að öryggi þeirra, stað­setn­ingu og undir­stöðu.

  • Ef lifandi kerti er notað í aðventukr­ansa og aðrar skreyt­ingar þarf að hafa þær þannig að sem minnst hætta sé á að kvikni í þeim þó að gleymist að slökkva.

  • Hafa bil á milli kerta a.m.k. 10 sm

Seríur

  • Minni eldhætta er af ledseríum en seríum með glóperum. 

  • Ekki nota seríur sem eru lask­aðar eða bilaðar.

  • Ef slokknar á perum í seríu eykst straumur til annarra og þær geta hitnað. Ef hægt er að skipta um perur þarf að gera það strax og gæta þess að nýju perurnar séu af réttum styrk­leika.

  • Hlaða ekki of miklu í fjöltengi og alls ekki tengja þau saman né fylla þau af mjög orku­frekum tækjum.

Eldvarna­bún­aður heim­il­isins

  • Reyk­skynjari á hverri hæð og í herbergjum þar sem raftæki eru. Ef 9 vatta rafhlaða er til staðar þarf að endur­nýja hana árlega.

  • Eldvarn­arteppi á sýni­legum stað í eldhúsi, samt ekki of nærri elda­vél.

  • Yfir­farið slökkvi­tæki sem er á aðgengi­legum stað við útgöngu.

Ef eldur kviknar

  • Skiptir öllu að allir komist heilir út.

  • Hringja í 112 um leið og hægt er.

  • Aldrei setja sig í hættu við að slökkva eld.

  • Ef kviknar í feiti á að setja eldvarna­teppi yfir en alls ekki nota vatn eða reyna að bera pott út.

Fréttasafn
Deila frétt