Fréttasafn

|

12.07.2019

Eru mínút­urnar áhætt­unnar virði?

Hraði bíla hefur ótrú­lega mikið að segja um hversu alvarleg slys verða. Fólks­bílar eru ekki árekstra­próf­aðir í frama­ná­keyrslu á meiri hraða en 64 km/klst. og líkaminn þolir illa harðari ákeyrslur þrátt fyrir bættan örygg­is­búnað bíla.

Stærsti hluti þjóð­vega­kerfis okkar er ekki með aðskildar akst­urs­stefnur og hámarks­hraði yfir­leitt 90 km/klst. Bílar mætast því á miklum hraða og mjög nálægt hvor öðrum. Samkvæmt mælingum Vega­gerð­ar­innar óku meira að segja 15% ökumanna á meiri hraða en 104 km/klst. Það er því ljóst að margir aka yfir leyfi­legum hámarks­hraða sem sparar einungis nokkrar mínútur í akstri en eykur líkurnar á alvar­legu slysi ef eitt­hvað fer úrskeiðis.

Núna þegar umferð er mikil á þjóð­veg­unum myndast oft langar bílar­aðir. Við þær aðstæður skilar framúrakstur engu nema aukinni slysa­hættu. Við hvetjum alla til að taka ekki fram úr nema að hafa góða sýn fram á við og enginn bíll í sjón­máli að koma akandi úr gagn­stæðri átt.

Ávinn­ingur af auknum hraða á kostnað öryggis er einfald­lega ekki þess virði. Í flestum tilvikum einungis um nokkrar mínútur að ræða, hærri eldsneyt­is­reikning og stress­aðri bílstjóra.

Fréttasafn
Deila frétt