Fréttasafn

|

19.12.2019

Erla samskipta­stjóri VÍS

Erla Tryggva­dóttir hefur verið ráðin samskipta­stjóri hjá VÍS. Hún mun miðla upplýs­ingum um félagið til fjöl­miðla og mark­aðs­aðila og bera ábyrgð á fram­fylgd samfé­lags­stefnu félags­ins.

Erla hefur víðtæka reynslu úr atvinnu­líf­inu. Hún var meðal annars starf­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Festu, miðstöð um samfé­lags­ábyrgð, viðskipta­stjóri hjá Brand­en­burg auglýs­inga­stofu, verk­efna­stjóri á samskipta- og mark­aðs­sviði hjá Straumi fjár­fest­ing­ar­banka og starfaði lengi hjá RÚV, bæði í sjón­varpi og útvarpi. Nú síðast starfaði hún hjá Stekk, fjár­fest­ing­ar­fé­lagi.

Erla stundar nú MBA nám við Háskólann í Reykjavík (HR) og lýkur prófi næsta vor. Hún er jafn­framt með meist­ara­gráðu í alþjóða­við­skiptum og mark­aðs­fræði frá HR og Viðskipta­há­skól­anum í Kaup­manna­höfn (CBS). Erla er með BA-gráðu í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands.

Fréttasafn
Deila frétt