Fréttasafn
|20.06.2019
Er eftirvagninn öruggur í umferðinni?
Allir vilja ferðast um landið á öruggan hátt og án þess að einhverjar óvæntar uppákomur verði. Alvarlegustu slysin þegar eftirvagnar eiga í hlut er þegar hýsin fjúka útaf, losna aftan úr eða rása svo mikið að þau fara yfir á rangan vegarhelming. Mikilvægt er að hver og einn geri allt sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir slys og óhöpp s.s.:

Nú er sá tími árs þar sem fjöldi eftirvagna er mestur á vegum landsins. Samkvæmt tölum Samgöngustofu hefur fjöldi fellihýsa og tjaldvagna nær staðið í stað síðustu fimm ár á meðan fjöldi hjólhýsa hefur aukist um nær 30%.
Allir vilja ferðast um landið á öruggan hátt og án þess að óvæntar uppákomur eigi sér stað. Alvarlegustu slysin þegar eftirvagnar eiga í hlut er þegar hýsin fjúka útaf, losna aftan úr eða rása svo mikið að þau fara yfir á rangan vegarhelming. Mikilvægt er að hver og einn geri allt sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir slys og óhöpp s.s.:
Fara með eftirvagninn í lögbundna skoðun
Vera viss um að bíllinn megi draga eftirvagninn og að ökuréttindi nái yfir samanlagða þyngd eftirvagns og bíls
Huga að bremsubúnaði, ljósum og dekkjum
Nota framlengda hliðarspegla ef eftirvagn byrgir sýn
Fara reglulega yfir gaslagnir ef þær eru til staðar
Vera með virkan eldvarnabúnað
Ganga vel frá tengibúnaði við bílinn og nota öryggisvírinn
Ef vindhviður fara yfir 15 m/sek getur borgað sig að endurskoða ferðaplanið
Tryggja góða sýn þegar bakkað er
Skilja verðmæti ekki eftir á glámbekk
Aka ávallt eftir aðstæðum