Fréttasafn

|

30.07.2019

Eftir einn ei aki neinn

Fyrir Versl­un­ar­manna­helgi er full ástæða til að minna ökumenn á mikil­vægi þess að setjast aldrei undir stýri ef áfengi eða önnur vímu­efni hafa verið höfð um hönd. Samkvæmt slysa­töl­fræði Samgöngu­stofu slös­uðust 149 einstak­lingar á síðasta ári vegna slíks akst­urs, þar af 24 alvar­lega og einn lést.

Á síðasta ári voru yfir helm­ingur mála sem VÍS sendi endur­kröfu­nefnd bifreiða­trygg­inga vegna ölvunar- og/eða fíkni­efna­akst­urs. Þar eru tjón­valdar krafðir um kostnað þess umferð­ar­slyss sem þeir ollu. Við þann kostnað bætist svo sekt lögreglu og ökuleyf­is­svipt­ing. Allur þessi kostn­aður getur reynst létt­vægur saman­borið við missi heilsu sem ósjaldan verður í þessum slysum og þá ekki eingöngu hjá tjón­valdi heldur öðrum sem viðkom­andi slas­aði.

Mikil­vægt er að hver og einn taki afstöðu um að aka aldrei eftir neyslu og þá líka að fara ekki of fljótt af stað daginn eftir. Það getur t.a.m. tekið líkama 70 kg einstak­lings allt að 3,5 klukku­stundir að brenna alkó­hól­magni hálfs lítra bjórs.

VÍS óskar öllum góðrar og öruggrar ferðar um helgina og hvetur ökumenn til að gæta að hraða, hafa alla athygli við akst­ur­inn, vera með beltið spennt og alls­gáðir og úthvíldir.

Fréttasafn
Deila frétt